
Ráðherra ásamt fulltrúum og starfsfólki starfshóps sem skilaði tillögum um framtíðar fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælaeftirliti. Tillögurnar fela m.a. í sér að heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna verða lagðar niður og starfsemi heilbrigðiseftirlits færð undir tvær ríkisstofnanir. Ljósm. Stjórnarráðið.
Heilbrigðiseftirlit verður fært frá sveitarfélögum til ríkisins
„Þörf er á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits með hollustuháttum og mengunarháttum og matvælaeftirliti,“ segir í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu og vísað til niðurstöðu starfshóps sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skipaði í október 2022 í samráði við matvælaráðherra, til að leggja til nýtt fyrirkomulag að eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum. Niðurstaða starfshópsins er m.a. sú að þörf sé á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlits og lagt til að heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna verði lagðar niður og starfsemi heilbrigðiseftirlita færð á annað stjórnsýslustig, þ.e. til stofnana ríkisins.