
Gul viðvörun vegna hvassviðris til kvölds
Í dag verður áfram suðaustan hvassviðri eða stormur á öllu sunnan- og suðvestanverðu landinu, 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Gul viðvörun er í gildi fyrir Faxaflóa til klukkan 22 í kvöld. Vegagerðin varar við sterkum vindstrengjum t.d. við Hafnarfjall, í utanverðum Hvalfirði, á Kjalarnesi og norðanverðu Snæfellsnesi. Fólk er hvatt til að fara varlega og ganga frá lausum munum.
Á vef Veðurstofunnar segir að 970 millibara lægð sé nú stödd norðaustur af Hvarfi og önnur 1030 mb hæð yfir Skandinavíu. Saman beini þessi kerfi til okkar tungu af hlýju lofti úr suðaustri. Þéttar þrýstilínur eru yfir landinu og hvassviðri eða stormur á Suður- og Vesturlandi í dag. "Í lægðinni er kaldur kjarni, en tungan er eins og áður sagði hlý og á mörkum loftmassanna eru veðraskil og úrkoma myndast. Það má því búast við vætusömu veðri, þó hann hangi lengst af þurr norðanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Hiti verður á bilinu 6-12 stig.