
Hollvinafélag Hallgrímskirkju stofnað í næstu viku
Á næsta ári verður þess minnst að 350 ár verða liðin síðan sálmaskáldið Hallgrímur Pétursson lést sextugur að aldri. Til stendur að minnast hans með ýmsum hætti á þessum tímamótum og eitt verkefnanna eru Hallgrímsdagar að hausti sem auglýstir var í Skessuhorni vikunnar og standa yfir 27. -29. október. Annað verkefni sem er í undirbúningi er að koma á fót hollvinafélagi fyrir Hallgrímskirkju í Saurbæ með formlegum hætti og verður það gert á til þess boðuðum fundi næstkomandi föstudag 27. október klukkan 19.30 í kirkjunni. Í drögum að lögum félagsins kemur m.a. fram að tilgangur þess verði að styðja við kirkjulegt og menningarlegt starf í kirkjunni og á staðnum og að standa vörð um starf og nafn Hallgríms Péturssonar og þær menningarminjar er tengjast nafni hans og Guðríðar Símonardóttur.