Fréttir

true

Vegagerðin varar við bikblæðingum á vegum landsins

Vegagerðin hefur gefið út fréttatilkynningu vegna bikblæðinga en talsvert er um þær á vegum nú þegar hlýnað hefur í veðri. Vegfarendur eru beðnir um að aka með gát. Vegagerðin hefur látið sanda vegi þar sem mikið er um bikblæðingar til að reyna að draga úr þeim. Varað er við ástandinu með skiltum og víða hefur…Lesa meira

true

Þrír rampar settir upp í Búðardal

Starfsmenn frá Römpum upp Ísland hafa unnið í Búðardal síðustu daga og luku fyrr í vikunni við uppsetningu rampa sem koma í þessari atrennu. Settir voru upp þrír rampar, tveir við leikskóla Auðarskóla og einn við Vínlandssetrið. Átakið „Römpum upp Ísland“ stefnir að því að byggja fimmtán hundruð rampa í þágu hreyfihamlaðra fyrir miðjan mars…Lesa meira

true

Ísak Birkir keppir á HM U21 í keilu

Dagana 7.-18. júlí fer fram heimsmeistaramót í keilu fyrir leikmenn 21 árs og yngri. Þetta mót er haldið í 17. skipti en það var síðast í Helsingborg í Svíþjóð árið 2022. Íslenska landsliðið hefur átt góðu gengi að fagna á þessu móti en árið 2008 voru þeir Hafþór Harðarson og Róbert Dan Sigurðsson sem stóðu…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður tilnefndur til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs eru veitt einstaklingum, fyrirtækjum, samtökum eða stofnunum sem hafa stuðlað að sjálfbærari byggingargeira á Norðurlöndum. Alls voru 70 verkefni tilnefnd, þar af tíu frá Íslandi. Tillögurnar 70 koma frá öllum hornum Norðurlanda og veita áhugaverða innsýn í það frumkvæði sem á sér stað á Norðurlöndum undir þema ársins, sjálfbærra bygginga. 28. júní næstkomandi…Lesa meira

true

Lokað í Hvalfjarðargöngum

Laust fyrir klukkan 13 í dag var Hvalfjarðargöngum lokað í kjölfar áreksturs. Viðbragðsaðilar eru nú að störfum á vettvangi og óvíst hvenær umferð verður hleypt þar á aftur. Vegagerðin bendir á hjáleið um Hvalfjarðarveg (47). Vegfarendum er bent á að fylgjast með tilkynningum á umferdin.isLesa meira

true

Fullur bær og brauðskortur í búðinni

Það þarf að huga að ýmsu þegar stóru skemmtiferðaskipin koma til Grundarfjarðar, en þá fjölgar í bænum um nokkur þúsund manns. Á sama tíma er nóg að gera hjá þjónustuaðilum í bæjarfélaginu. Fullt er út úr dyrum á veitingastöðunum og birgðir í búðinni ganga hratt út. Kirkjufellsstrætóinn fer margar ferðir og svo að sjálfsögðu rúturnar…Lesa meira

true

Víkingur og Kári heppnir með andstæðinga

Í hádeginu í dag var dregið í 16-liða úrslit í Fótbolti.net bikarnum sem er bikarkeppni neðri deilda eða úr 2., 3. og 4. deild. Tvö Vesturlandslið voru í pottinum, Víkingur Ólafsvík sem leikur í 2. deild á Íslandsmótinu og Kári sem er í þeirri þriðju. Víkingur fékk útileik á móti Árbæ sem spilar í 3.…Lesa meira

true

Skrúðganga og setning Norðurálsmóts – Myndir

Klukkan ellefu í morgun fóru liðin á Norðurálsmótinu í knattspyrnu sem fram fer á Akranesi um helgina í skrúðgöngu frá Stillholti og upp að mótssvæðinu við Jaðarsbakka. Keppni hefst síðan klukkan hálfeitt og stendur til klukkan hálfsex í dag. Kvöldverður verður síðan fram reiddur frá klukkan 17-20 í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum.Lesa meira

true

Jarðvegsskipt fyrir nýju íþróttahúsi

Framkvæmdir eru hafnar vegna byggingar nýs íþróttahúss Hvalfjarðarsveitar við Heiðarborg. Um er að ræða stærstu einstöku framkvæmd sveitarfélagsins í rúman áratug. Húsið sem rísa mun á lóðinni er hannað af ASK arkitektum. Nú er í gangi fyrsti áfangi framkvæmdarinnar, þ.e. jarðvinna en í kjölfarið hefst uppsteypa, frágangur utanhúss ásamt grófjöfnun lóðar. Verktaki er K16 ehf.…Lesa meira

true

Framkvæmdir í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi

Töluverðar framkvæmdir eru nú í gangi innan dyra í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Stækka á kvennaklefa og útbúa sérklefa fyrir sundlaugargesti en ekki er komin tímasetning hvenær verkinu lýkur. Nú á sunnudaginn verður innilaugin tæmd og verður hún lokuð næstu tvær til þrjár vikurnar. Eftir að Landsmóti UMFÍ lýkur og stækkun kvennaklefa verður lokið er stefnan…Lesa meira