
Skrúðganga og setning Norðurálsmóts – Myndir
Klukkan ellefu í morgun fóru liðin á Norðurálsmótinu í knattspyrnu sem fram fer á Akranesi um helgina í skrúðgöngu frá Stillholti og upp að mótssvæðinu við Jaðarsbakka. Keppni hefst síðan klukkan hálfeitt og stendur til klukkan hálfsex í dag. Kvöldverður verður síðan fram reiddur frá klukkan 17-20 í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum.










