
Inngangur í sérklefa. Ljósm. hig
Framkvæmdir í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
Töluverðar framkvæmdir eru nú í gangi innan dyra í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi. Stækka á kvennaklefa og útbúa sérklefa fyrir sundlaugargesti en ekki er komin tímasetning hvenær verkinu lýkur. Nú á sunnudaginn verður innilaugin tæmd og verður hún lokuð næstu tvær til þrjár vikurnar. Eftir að Landsmóti UMFÍ lýkur og stækkun kvennaklefa verður lokið er stefnan að stækka karlaklefa fyrir sundlaugargesti.