
Víkingur og Kári heppnir með andstæðinga
Í hádeginu í dag var dregið í 16-liða úrslit í Fótbolti.net bikarnum sem er bikarkeppni neðri deilda eða úr 2., 3. og 4. deild. Tvö Vesturlandslið voru í pottinum, Víkingur Ólafsvík sem leikur í 2. deild á Íslandsmótinu og Kári sem er í þeirri þriðju. Víkingur fékk útileik á móti Árbæ sem spilar í 3. deild og Kári fékk heimaleik á móti Magna Grenivík sem er einnig í 3. deild eins og Kári.