
Tvö skip á sama tíma og bærinn iðaði af lífi. Ljósm. tfk
Fullur bær og brauðskortur í búðinni
Það þarf að huga að ýmsu þegar stóru skemmtiferðaskipin koma til Grundarfjarðar, en þá fjölgar í bænum um nokkur þúsund manns. Á sama tíma er nóg að gera hjá þjónustuaðilum í bæjarfélaginu. Fullt er út úr dyrum á veitingastöðunum og birgðir í búðinni ganga hratt út. Kirkjufellsstrætóinn fer margar ferðir og svo að sjálfsögðu rúturnar sem aka með ferðamenn hringinn í kringum Snæfellsnesið.