
Dæmi um blæðingu í malbiki á bílastæði nærri Hvalfjarðargöngum. Ljósm. úr safni
Vegagerðin varar við bikblæðingum á vegum landsins
Vegagerðin hefur gefið út fréttatilkynningu vegna bikblæðinga en talsvert er um þær á vegum nú þegar hlýnað hefur í veðri. Vegfarendur eru beðnir um að aka með gát. Vegagerðin hefur látið sanda vegi þar sem mikið er um bikblæðingar til að reyna að draga úr þeim. Varað er við ástandinu með skiltum og víða hefur hraði verið lækkaður.