
Akraneskaupstaður hefur skrifað undir þjónustusamning við Terra umhverfisþjónustu um þjónustu á sviði úrgangsmála næstu sex árin. Fyrirtækið Terra, áður Gámaþjónustan, hefur séð um þessa þjónustu frá árinu 2017 og rann samningurinn um þjónustuna út í lok mars á þessu ári en var framlengdur þar til nýju útboði var lokið og lagði Terra fram hagstæðasta tilboðið…Lesa meira








