Fréttir

true

Opnunartími Gámu lengdur á laugardögum fram í byrjun júní

Í tilkynningu frá Akraneskaupstað kemur fram að opnunartími Gámu við Höfðasel verður lengri næstu sex laugardaga eða frá og með 4. maí til 8. júní. Þessi aukna þjónusta er hugsuð fyrir íbúa sem ætla að nýta tækifærið og sinna vorhreingerningu heima hjá sér um helgar. Tillöguna samþykkti skipulags- og umhverfisráð á fundi sínum 29. apríl.…Lesa meira

true

„Viljum enda hærra í deildinni í sumar“

Spjallað við Aron Ými Pétursson þjálfara Kára Knattspyrnufélagið Kári leikur í 3. deild karla í ár eins og síðustu tvö árin á undan en í fyrra endaði liðið í 5. sæti deildarinnar. Aron Ýmir Pétursson er á sínu öðru ári með liðið og honum til aðstoðar eru þeir Andri Júlíusson og Alexander Aron Davorsson. Blaðamaður…Lesa meira

true

Þungarokkshátíðin Sátan verður í Stykkishólmi í júní

Dagana 6.-8. júní í sumar verður þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi í fyrsta sinn. Sátan verður þriggja daga þungarokkshátíð þar sem lögð verður áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fremstu þungarokks hljómsveitum Íslands hverju sinni ásamt vel völdum erlendum hljómsveitum. Hópurinn á bak við Sátuna samanstendur af þungarokks unnendum og tónlistarfólki sem…Lesa meira

true

Lítil Barnamenningarhátíð í Borgarnesi

Í Grunnskóla Borgarness var í dag opinn dagur í tengslum við litlu Barnamenningarhátíðina sem fer fram dagana 2. til 7. maí. Við vekjum athygli á að lítið sérblað um hátíðina fylgir Skessuhorni vikunnar. Nemendur elsta stigs grunnskólans voru í dag með ýmsan varning til sölu sem þeir hafa gert í skólanum og má þar nefna…Lesa meira

true

Skallagrímur hélt lokahóf í körfunni

Lokahóf Skallagríms í meistaraflokki karla í körfuknattleik fór fram síðasta vetrardag á Grillhúsinu og var hófið í boði Grillhússins og Nes Fasteignasölu. Eftir að hafa lokið dýrindis máltíð voru veitt verðlaun og þakklætis gjafir til þeirra sem hafa skarað fram úr á einn eða annan hátt. Undanfrin ár hafa leikmenn liðsins kosið þá sem hljóta…Lesa meira

true

Vilja stækka Garðavöll um níu holur

Síðastliðinn föstudag fór hluti stjórnar og framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi á fund með bæjaryfirvöldum Akraneskaupstaðar. Þar lögðu forsvarsmenn GL fram minnisblað þar sem óskað var eftir samningi um landsvæði til stækkunar á Garðavelli úr 18 holum í 27 holur. Þetta kemur fram á FB síðu golfklúbbsins Leynis. „Stjórn og framkvæmdastjóri GL þakka bæjarfulltrúum og…Lesa meira

true

Síðari umferð biskupskosningar hafin

Á hádegi í dag hófst síðari umferð kosninga til biskups Íslands. Henni lýkur svo á hádegi þriðjudaginn 7. maí. Kosið er milli þeirra sr. Guðmundar Karls Brynjarssonar sóknarprests í Lindakirkju og sr. Guðrúnar Karls- Helgudóttur sóknarprests í Grafarvogskirkju. Í kjöri til biskups eru þau tvö sem flest atkvæði hlutu í fyrri umferð kosninganna um miðjan…Lesa meira

true

Uppbyggingarsjóður SSV auglýsir eftir öndvegisverkefnum

Úthlutunarnefnd Uppbyggingarsjóðs Vesturlands hefur ákveðið að veita 20 milljónir króna til áhugaverðra verkefna á Vesturlandi. Viðkomandi verkefni geta verið á hugmyndastigi eða lengra komin. Þau þurfa að hafa skírskotun til svæðisins og nýsköpunar í atvinnulífi og menningu þess, segir í kynningu. Tilgangur Uppbyggingarsjóðs er að styrkja annars vegar menningarverkefni og hinsvegar atvinnu- og nýsköpunarverkefni á…Lesa meira

true

Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur

Fyrsti maí var haldinn hátíðlegur um gjörvallt Vesturland í gær í blíðskaparveðri. Sameyki, Kjölur og Verkalýðsfélag Snæfellinga stóðu á Snæfellsnesi fyrir hátíðarhöldum í Stykkishólmi, Grundarfirði og Snæfellsbæ. Saga Kjartansdóttir verkefnisstjóri vinnustaðareftirlits hjá ASÍ var ræðumaður á öllum stöðum og Karl Olgeirsson og Salka Sól fluttu tónlistaratriði. Svo voru tónlistarskólarnir á hverjum stað með atriði. Að…Lesa meira

true

Vélarvana bátur úti af Mýrum

Jafnan þegar strandveiðitímabilið hefst er eitthvað um að bátar missi vélarafl eða skipverjar þurfi af einhverjum ástæðum að kalla eftir aðstoð. Í gærkvöldi fór Lífsbjörg í Snæfellsbæ til aðstoðar báti sem var vélarvana um 200 metra frá landi skammt frá Malarrifi. Björgin sigldi á vettvang og kom til aðstoðar. Nú í hádeginu í dag var…Lesa meira