Fréttir

true

Andlát og minning – Bogga á Báreksstöðum

Sigurborg Ágústa Jónsdóttir á Báreksstöðum í Andakíl er látin, 93 ára að aldri. Síðustu árin bjó hún á Brákarhlíð í Borgarnesi. Hún var jarðsett frá Guðríðarkirkju í gær, en athöfnin fór fram í kyrrþey. Árið 2015 birtist í Skessuhorni opnuviðtal við Boggu á Báreksstöðum þar sem hún leit yfir farinn veg; allt frá erfiðri æsku…Lesa meira

true

Skagamenn í 16-liða úrslit í Mjólkurbikarnum – Dregið í hádeginu

ÍA og Tindastóll mættust í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla um miðjan dag í gær á sumardaginn fyrsta og var leikurinn í Akraneshöllinni. Skagamenn gerðu átta breytingar á byrjunarliði sínu frá sigurleiknum gegn Fylki um síðustu helgi enda fjórar deildir á milli þessara liða en Tindastólsmenn leika í 4. deild í sumar. Norðanmenn börðust eins og…Lesa meira

true

Veturinn kvaddi með þunga og skemmdum á þakköntum

Gríðarleg snjókoma var í Grundarfirði fyrri hluta aprílmánaðar. Margir nutu góðs af þessu mikla snjóskoti eins og skíðaiðkendur en mjög langt er síðan skíðalyftan var opin í svona marga daga. Sólin er farin að hækka á lofti og snjórinn bráðnaði yfir daginn og frysti aftur á nóttunni. Þessi þyngsli fóru þó ekki vel með þök…Lesa meira

true

Lýðheilsuverðlaunin afhent á Bessastöðum

Grunnskólinn á Ísafirði og Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur og fagstjóri Sorgarmiðstöðvar, eru handhafar Íslensku lýðheilsuverðlaunanna 2024. Guðni Th Jóhannesson forseti Íslands afhenti verðlaunin við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Íslensku lýðheilsuverðlaunin eru samstarfsverkefni embættis forseta Íslands í samstarfi við Geðhjálp, embætti landlæknis, heilbrigðisráðuneytið og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Í febrúar var kallað eftir tillögum…Lesa meira

true

Annir hjá björgunarsveitum í gær á sumardaginn fyrsta

Björgunarsveitir á landinu tókust á við nokkur verkefni á sumardaginn fyrsta, meðal annars sveitirnar hér á Vesturlandi. Um klukkan 12:30 var björgunaskipið Björg í Rifi kallað út vegna smábáts sem hafði bilað sunnan undir Svörtuloftum á Snæfellsnesi. Gír hafði bilað og bátsverjar kölluðu því eftir aðstoð. Björg lagði úr höfn í Rifi um klukkan 12:45…Lesa meira

true

Tíu frambjóðendur komnir með lágmarksfjölda meðmælenda

Í tilkynningu kemur fram að Helga Þórisdóttir forsetaframbjóðandi og forstjóri Persónuverndar hefur náð lágmarksfjölda í meðmælendasöfnun fyrir framboð sitt. Er hún tíundi frambjóðandinn sem nær því markmiði. Frestur til að skila inn framboðum rennur út á hádegi í dag og því gæti bæst við þessa tölu. Yfirkjörstjórn mun þá fara yfir meðmælendalista og gefa út…Lesa meira

true

Harðviðarbryggja í smíðum í Ólafsvík

Framkvæmdir standa nú yfir við Ólafsvíkurhöfn þar sem verið er að endurbyggja og stækka harðviðarbryggju við Norðurtanga, en bryggjan var upphaflega byggð árið 2007. Búið er að fjarlægja alla dekk- og þybbuklæðningu af eldri bryggju, reka niður 15 bryggjustaura og ganga frá öllu burðarvirki á nýjum hluta bryggjunnar. Nú er unnið við nýtt dekk og…Lesa meira

true

Fyrirhugaðir búferlaflutningar kannaðir á Vesturlandi

Í nýlegri íbúakönnun, sem Vífill Karlsson hagfræðingur SSV er að vinna, var leitað vísbendinga um væntanlega búferlaflutninga fólks vítt og breitt um landið. Í þeim tilgangi var spurt: „Finnst þér líklegt eða ólíklegt að þú eigir eftir að flytja búferlum á næstu tveimur árum?“ Niðurstaðan á Vesturlandi er áhugaverð. Á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit eru…Lesa meira

true

Kálfafjós í byggingu á Litla Kroppi

Risið er myndarleg bygging á bænum Litla-Kroppi í Borgarfirði. Verið er að setja upp flekahurðir og glugga í báða gafla hússins en því svipar mjög til annars kálfahúss sem er á Hundastapa á Mýrum. Magnúsi Eggertsson, bónda í Ásgarði og Litla-Kroppi, segir að stefnt sé á að byrja að setja upp innréttingar nú í byrjun…Lesa meira

true

Þema ljósmyndasamkeppni er gleði

Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar verður haldin í fimmtánda sinn í ár. Það er menningarnefnd bæjarins sem heldur utan um keppnina og hefur ákveðið að þema keppninnar í ár verði „Gleði.“ Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2023 til 18. nóvember 2024 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki…Lesa meira