
Verktakar við vinnu sína. Frá vinstri eru bryggjusmiðirnir Guðlaugur Einarsson, Björgvin G. Hallgrímsson og Guðmundur Ólafsson. Ljósm. hig
Harðviðarbryggja í smíðum í Ólafsvík
Framkvæmdir standa nú yfir við Ólafsvíkurhöfn þar sem verið er að endurbyggja og stækka harðviðarbryggju við Norðurtanga, en bryggjan var upphaflega byggð árið 2007. Búið er að fjarlægja alla dekk- og þybbuklæðningu af eldri bryggju, reka niður 15 bryggjustaura og ganga frá öllu burðarvirki á nýjum hluta bryggjunnar. Nú er unnið við nýtt dekk og þybbuklæðningu ásamt vatns- og raflögnum. Við þessar framkvæmdir stækkar bryggjan um tæplega 200 fermetra. Að sögn Björns Arnaldssonar hafnarstjóra í Snæfellsbæ, verða tveir löndunarkranar staðsettir á bryggjunni og verða þessar endurbætur mjög góð viðbót við löndunaraðstöðu fyrir smábáta í Ólafsvík.