Nýja kálfafjósið á Litla-Kroppi. Ljósm. hig

Kálfafjós í byggingu á Litla Kroppi

Risið er myndarleg bygging á bænum Litla-Kroppi í Borgarfirði. Verið er að setja upp flekahurðir og glugga í báða gafla hússins en því svipar mjög til annars kálfahúss sem er á Hundastapa á Mýrum. Magnúsi Eggertsson, bónda í Ásgarði og Litla-Kroppi, segir að stefnt sé á að byrja að setja upp innréttingar nú í byrjun maí mánaðar. „Ég get vonandi komist inn með kálfa um miðjan júní en þetta verður frábær uppeldisaðstaða fyrir kálfana. Ég sé fyrir mér um 120-150 kálfa hér inni,“ segir Magnús, en hann rekur kúabú sitt í Ásgarði en heldur fé í gömlu fjárhúsunum á Litla Kroppi.

Kálfafjós í byggingu á Litla Kroppi - Skessuhorn