Þessi mynd varð í 1. sæti í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2023. Diana Arcila með mynd úr litahlaupi grunnskólans.

Þema ljósmyndasamkeppni er gleði

Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar verður haldin í fimmtánda sinn í ár. Það er menningarnefnd bæjarins sem heldur utan um keppnina og hefur ákveðið að þema keppninnar í ár verði „Gleði.“ Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2023 til 18. nóvember 2024 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir. Myndir sem sendar eru inn í keppnina mega ekki hafa verið birtar á neinum miðlum fyrr en að verðlaunaafhendingu lokinni.

Þema ljósmyndasamkeppni er gleði - Skessuhorn