
Báturinn kominn í tog. Ljósmyndir: Landsbjörg
Annir hjá björgunarsveitum í gær á sumardaginn fyrsta
Björgunarsveitir á landinu tókust á við nokkur verkefni á sumardaginn fyrsta, meðal annars sveitirnar hér á Vesturlandi. Um klukkan 12:30 var björgunaskipið Björg í Rifi kallað út vegna smábáts sem hafði bilað sunnan undir Svörtuloftum á Snæfellsnesi. Gír hafði bilað og bátsverjar kölluðu því eftir aðstoð. Björg lagði úr höfn í Rifi um klukkan 12:45 og var komin að bátnum rétt um hálf tvö. Ekkert amaði að skipverjum, en þurftu tog til hafnar. Báturinn var tekinn í tog og haldið til hafnar í Rifi, þar sem komið var um klukkan 15:20, þar sem aflanum var landað úr honum í kjölfarið.