
Saga heimsmeistarans var sögð öðru sinni fyrir fullum sal á sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi síðastliðið laugardagskvöld. Gjörningurinn var í höndum höfundarins Einars Kárasonar sem kann list frásagnarinnar, þessa menningararfs sem glæddi baðstofurnar lífi gegnum aldirnar og gaf þjóðinni sýn út fyrir hlaðna veggi þeirra. Það er baðstofustemning á Söguloftinu, gömlu pakkhúslofti sem hefur öðlast hlutverk…Lesa meira








