
Sagnamaðurinn Einar
Saga heimsmeistarans var sögð öðru sinni fyrir fullum sal á sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi síðastliðið laugardagskvöld. Gjörningurinn var í höndum höfundarins Einars Kárasonar sem kann list frásagnarinnar, þessa menningararfs sem glæddi baðstofurnar lífi gegnum aldirnar og gaf þjóðinni sýn út fyrir hlaðna veggi þeirra. Það er baðstofustemning á Söguloftinu, gömlu pakkhúslofti sem hefur öðlast hlutverk menningarvettvangs í höndum Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur og Kjartans Ragnarssonar. Einar er kunnugur sviðinu enda hefur hann sagt sögur þar áður, bæði einn og með dóttur sinni og bæði sínar eigin sögur og hinar höfundarlausu Íslendingasögur. Rýmið er vel til fallið fyrir einmenningssýningar og sögur, súðin skapar notaleg þrengsli og allir áhorfendur geta upplifað persónulega nánd við sögumanninn. Það hljóðnar í salnum í þann mund sem hann gengur inn gólfið.