Fréttir

true

Óhöpp í umferð og á gangi

Bílvelta varð nærri Akranesi í vikunni sem leið, án slysa á fólki. Þá lentu erlendir ferðamenn utan vegar á Hvalfjarðarvegi. Fengu þeir aðstoð við að komast aftur inn á veginn og héldu för sinni áfram en bifreiðin skemmdist lítið og ekki urðu slys á fólki. Ferðamaður missteig sig og slasaðist nærri Arnarstapa á Snæfellsnesi. Var…Lesa meira

true

Flytja Stabat Mater í Akraneskirkju að kvöldi föstudagsins langa

Á föstudaginn langa, 29. mars næstkomandi, verður flutt hið forna helgikvæði, Stabat Mater, eftir Giovanni Battista Pergolesi í Akraneskirkju við helgistund kl. 20. Stabat Mater er kristinn sálmur frá 13. öld, saminn til dýrðar Maríu mey og endurspeglar raunir hennar við krossfestingu sonar hennar Jesú Krists. Líkt er með ævi meistaranna Mozart og Pergolesi að…Lesa meira

true

Keppt í tvígangi á götuleikum Dreyra

Aðrir götuleikar hestamannafélagsins Dreyra á Akranesi voru haldnir 14. mars í reiðhöllinni Æðarodda. Að þessu sinni var keppt í tvígangi, þar sem keppendur sýndu tölt og brokk. Á fyrstu götuleikunum 15. febrúar var keppt í tölti; hægu og fegurðar. Venju samkvæmt var frábær þátttaka keppenda og allir höfðu gaman. Áhorfendabekkirnir voru sömuleiðis þétt setnir og…Lesa meira

true

Skrifað undir samning vegna landsmóts í Borgarnesi

„Það er mikil tilhlökkun meðal okkar í Borgarbyggð að taka á móti íþróttafólki og gestum á Unglingalandsmót 2024. Það er löng hefð fyrir því að íþróttafólk skíni skært í sumarsólinni í Borgarfirðinum. Framundan er heilmikil undirbúningsvinna sem unnin verður í góðu samstarfi UMSB, UMFÍ, Borgarbyggðar og fjölmargra sjálfboðaliða. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest…Lesa meira

true

Skessuhorn prentað í kvöld

Skessuhorn nú í dymbilvikunni kemur út á morgun, þriðjudag. Það er gert til að freista þess að Íslandspóstur komi blöðunum til áskrifenda tímanlega fyrir páska. Efni til birtingar og pantanir á auglýsingum þurfa að berast í síðasta lagi fyrir hádegi í dag. Efni sendist á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is en auglýsingar á auglysingar@skessuhorn.is Bendum á símann 433-5500.…Lesa meira

true

Kári í undanúrslit í Lengjubikarnum

Vesturlandsliðin Kári, Víkingur Ólafsvík og Skallagrímur spiluðu í Lengjubikarnum um helgina þegar þau léku síðustu leiki sína í B og C deild karla í knattspyrnu í ár. Kári kominn í undanúrslit Kári og Ægir áttust við í riðli 3 í B deild á laugardaginn og var leikurinn í Akraneshöllinni. Kára nægði jafntefli í leiknum til…Lesa meira

true

Haldið upp á 80 ára afmæli Tilraunabúsins á Hesti – myndasyrpa

Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku fór fram viðamikil dagskrá á Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði í tilefni þess að nú eru 80 ár liðin frá því Tilraunabúið á Hesti hóf göngu sína. Það var Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri sem beitti sér fyrir að sauðfjárræktarbúið á Hesti var stofnað, jörð keypt og byggð upp. Hann…Lesa meira

true

Lögreglan færði leikskólabörnum endurskinsmerki

Samfélagslöggurnar á Vesturlandi afhentu öllum leikskólabörnum á Vesturlandi endurskinsmerki í heimsóknum sínum í leikskóla í febrúar og byrjun mars. Voru þetta hátt í eitt þúsund endurskinsmerki merkt lögreglunni. Fengu elstu börnin fræðslu um hvar þau ættu að setja endurskinsmerkin og mikilvægi bílstóla og bílbelta. Einnig að löggan væri vinur þeirra og þau gætu alltaf leitað…Lesa meira

true

Pétur tekur við af Bjarnheiði í stjórn SAF

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar fór fram á Hilton Reykjavík Nordica síðstliðinn fimmtudag. Í aðdraganda aðalfundar fór fram rafræn kosning meðal félagsmanna um þrjá meðstjórnendur í stjórn SAF til næstu tveggja ára ásamt því að kjörinn var formaður.  Á fundinum var Pétur Óskarsson, framkvæmdastjóri Viator ehf., kjörinn formaður SAF til næstu tveggja ára. Tekur Pétur við formennskunni…Lesa meira

true

Vitundarvakning um mikilvægi blaðamennsku

Blaðamannafélag Íslands hefur hrundið af stað vitundarherferð. Markmið hennar er að vekja fólk til vitundar um mikilvægi blaðamennsku fyrir samfélagið. Lykilskilaboðin sem herferðin byggir á eru: Hlutverk blaðamanna Blaðamenn draga saman upplýsingar, setja hlutina í samhengi og greiða úr óreiðunni.  Þeir koma á framfæri ólíkum sjónarmiðum, setja fram staðreyndir og kanna sannleiksgildi þess sem sagt…Lesa meira