Þessir krakkar stilltu sér upp með vinum sínum í löggunni. Ljósm. FB síða LV

Lögreglan færði leikskólabörnum endurskinsmerki

Samfélagslöggurnar á Vesturlandi afhentu öllum leikskólabörnum á Vesturlandi endurskinsmerki í heimsóknum sínum í leikskóla í febrúar og byrjun mars. Voru þetta hátt í eitt þúsund endurskinsmerki merkt lögreglunni. Fengu elstu börnin fræðslu um hvar þau ættu að setja endurskinsmerkin og mikilvægi bílstóla og bílbelta. Einnig að löggan væri vinur þeirra og þau gætu alltaf leitað til lögreglunnar. „Var síðan lituð mynd með krökkunum sem þau höfðu mjög gaman af. Viljum við þakka fyrir góðar móttökur á öllum þeim leikskólum sem við heimsóttum,“ segir í færslu á FB síðu Lögreglunnar á Vesturlandi.

Lögreglan færði leikskólabörnum endurskinsmerki - Skessuhorn