
Guðrún Hildur, Jóhann Steinar og Stefán Broddi undirrituðu samninginn. Ljósm. hig
Skrifað undir samning vegna landsmóts í Borgarnesi
„Það er mikil tilhlökkun meðal okkar í Borgarbyggð að taka á móti íþróttafólki og gestum á Unglingalandsmót 2024. Það er löng hefð fyrir því að íþróttafólk skíni skært í sumarsólinni í Borgarfirðinum. Framundan er heilmikil undirbúningsvinna sem unnin verður í góðu samstarfi UMSB, UMFÍ, Borgarbyggðar og fjölmargra sjálfboðaliða. Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í Borgarbyggð í sumar,“ sagði Stefán Broddi Guðjónsson sveitarstjóri Borgarbyggðar þegar samningur á milli UMSB, UMFÍ og Borgarbyggðar var undirritaður í síðustu viku.