Horft yfir byggingarnar á Hesti; fjárhúsin til vinstri á mynd en fjærst er Nautastöðin og kálfahús. Ljósm. LbhÍ

Haldið upp á 80 ára afmæli Tilraunabúsins á Hesti – myndasyrpa

Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku fór fram viðamikil dagskrá á Hvanneyri og Hesti í Borgarfirði í tilefni þess að nú eru 80 ár liðin frá því Tilraunabúið á Hesti hóf göngu sína. Það var Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri sem beitti sér fyrir að sauðfjárræktarbúið á Hesti var stofnað, jörð keypt og byggð upp. Hann stýrði búinu og vann við það allt þar til hann hætti störfum fyrir bændur. Á Hesti svalaði hann í senn þörfum bóndans og vísindamannsins sem í honum blundaði. Eftir hans tíð tóku síðan aðrir við keflinu á Hesti en allar götur hefur búið verið rekið af myndarskap og átt sinn þátt í miklum framförum sem orðið hafa í sauðfjárrækt.

Haldið upp á 80 ára afmæli Tilraunabúsins á Hesti - myndasyrpa - Skessuhorn