Fréttir

true

Heimsókn nemenda FVA til Hildesheim

Sunnudaginn 4. febrúar síðastliðinn lögðu af stað fjórir nemendur og einn kennari frá tréiðnadeild Fjölbrautaskóla Vesturlands í heimsókn til Hildesheim, sem er 100.000 manna borg í neðra Saxlandi í Þýskalandi. Ferðin var farin sem samstarfsverkefni FVA við Erasmus+ en skólinn er með vottaða aðild að því batteríi. Verkefnið gekk út á að nemendurnir fengu að…Lesa meira

true

Opið hús var í Menntaskóla Borgarfjarðar

Lífsnámsvika nemenda á stúdentsbraut við Menntaskóla Borgarfjarðar endaði í gær, en þessa vikuna var kenndur áfanginn FJÁRVIT. Allir nemendur á stúdentsbraut sitja í heildina fimm áfanga í Lífsnámi, eina viku á önn. Nemendur kynntu lokaverkefni sín í áfanganum en þeir voru búnir að fá ýmsar kynningar í vikunni, t.d. frá KPMG og Gunnar Baldvinsson, höfundur…Lesa meira

true

Kvenfélagið Lilja gaf veglega gjöf til félagsmiðstöðvarinnar 301

Á opnu húsi 6. mars síðastliðinn afhentu félagskonur í Kvenfélaginu Lilju í Hvalfjarðarsveit veglegar gjafir til félagsmiðstöðvarinnar 301. Félagsmiðstöðin 301 er starfandi í Heiðarskóla. Unglingarnar tóku á móti gjöfunum og buðu félagskonum upp á veitingar og skoðun um félagsmiðstöðina 301. Fram kemur á vef Hvalfjarðarsveitar að Kvenfélagið Lilja gaf poolborð, Playstation 5 tölvu, tvo stýripinna,…Lesa meira

true

Opnað fyrir sölu húsnæðis

Íbúar í Grindavík, sem óska eftir því að selja ríkissjóði íbúðarhúsnæði sitt í gegnum Fasteignafélagið Þórkötlu, samkvæmt nýsamþykktum lögum Alþingis, geta nú fyllt út umsókn á Ísland.is. „Gert er ráð fyrir að vinnsla umsókna taki um 2-4 vikur, með fyrirvara um fjölda umsókna og umfang við vinnslu þeirra, sem gera má ráð fyrir að verði…Lesa meira

true

Halda ráðstefnu í tilefni 80 ára afmælis Tilraunabúsins á Hesti

Tveir viðburðir tengdir sauðfjárrækt verða haldnir að Hvanneyri og á Hesti í Borgarfirði dagana 21. – 22. mars næstkomandi. Hinn hefðbundni fagfundur sauðfjárræktarinnar, sem fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir, verður haldinn í Ásgarði á Hvanneyri kl. 10-17 fimmtudaginn 21. mars. Erindi þar verða fjölbreytt að vanda og greina frá niðurstöðum ýmissa rannsókna- og þróunarverkefna í…Lesa meira

true

Húsfyllir þegar kórar á Snæfellsnesi sungu með Sinfó

Það var þétt setinn bekkurinn í íþróttahúsinu í Stykkishólmi í gærkvöldi þegar þar fóru fram stórtónleikar. Sinfóníuhljómsveit Íslands kom í Stykkishólm og hélt tónleika. Á dagskránni voru þrjú verk eftir höfuðtónskáld klassíska tímans en auk þess hljómuðu þrjú hugljúf íslensk lög í flutningi hljómsveitarinnar og sameinaðra kóra á Snæfellsnesi. Kórinn skipa um 80 söngvarar úr…Lesa meira

true

Fundaröð um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar

Upplýsinga- og umræðufundir um framtíðarmöguleika Breiðafjarðar verða haldnir nú í mars mánuði en um er að ræða verkefni sem hófst árið 2022, þar sem forsendugreining um verndun Breiðafjarðar, með tilliti til sjálfbærrar nýtingar og byggðaþróun, verða kynnt. Markmið fundanna er að heyra sjónarmið íbúa og hagaðila, stýrihópi verkefnisins til upplýsingar, en hann mun síðar gera…Lesa meira

true

Stefnt að uppsetningu 24 farsímasenda á Vestfjörðum

Fjarskiptafyrirtækin og Neyðarlínan hyggjast reisa 24 farsímasenda á Vestfjörðum. Koma á símasambandi á alla stofnvegi fyrir árslok 2026 sem mun auka öryggi vegfarenda til muna. Frá þessu var sagt í kvöldfréttum RÚV í vikunni. Í Ísafjarðardjúpi er fjölfarinn vegur en fáir mannabústaðir. Víða er sambandslaust í botni fjarða. Það sama má segja um sunnanverða Vestfirði…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 79 á þremur mánuðum

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um íbúafjölda eftir sveitarfélögum 1. mars síðastliðinn. Hér á Vesturlandi fjölgaði íbúum um 79 frá 1. desember 2023, eru nú 18.120 talsins. Af níu sveitarfélögum í landshlutanum fjölgar íbúum á tímabilinu í fimm, fækkar í þremur en í einu stendur íbúafjöldinn í stað. Langmest hlutfallsleg fjölgun hefur orðið í Skorradalshreppi…Lesa meira

true

Bæta loftgæði í Tónlistarskóla Stykkishólms

Miðvikudaginn 27. febrúar síðastliðinn var ákveðið að loka tónlistarskólanum í Stykkishólmi fram yfir helgi á meðan unnið væri að bættum loftgæðum í húsinu. Á meðan á lokun stóð unnu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar að tiltekt í tæknirými og kjallara húsnæðisins ásamt viðgerðum hér og þar. Þar að auki var fyrirtækið Disact fengið til að sótthreinsa húsnæðið með…Lesa meira