Steiney Sigurðardóttir fór með einleikshlutverkið, hljómsveitin og kórarnir í Íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Ljósm. sá

Húsfyllir þegar kórar á Snæfellsnesi sungu með Sinfó

Það var þétt setinn bekkurinn í íþróttahúsinu í Stykkishólmi í gærkvöldi þegar þar fóru fram stórtónleikar. Sinfóníuhljómsveit Íslands kom í Stykkishólm og hélt tónleika. Á dagskránni voru þrjú verk eftir höfuðtónskáld klassíska tímans en auk þess hljómuðu þrjú hugljúf íslensk lög í flutningi hljómsveitarinnar og sameinaðra kóra á Snæfellsnesi. Kórinn skipa um 80 söngvarar úr Kirkjukór Ólafsvíkurkirkju, Kirkjukór Grundarfjarðarkirkju, Karlakórnum Kára, Kirkjukór Ingjaldshólskirkju, Karlakórnum Heiðbjörtu, Kvennasveitinni Skaða og Kirkjukór Stykkishólmskirkju.

Húsfyllir þegar kórar á Snæfellsnesi sungu með Sinfó - Skessuhorn