Það var talsverð vigt í vatnskútunum. Ljósm. aðsendar

Bæta loftgæði í Tónlistarskóla Stykkishólms

Miðvikudaginn 27. febrúar síðastliðinn var ákveðið að loka tónlistarskólanum í Stykkishólmi fram yfir helgi á meðan unnið væri að bættum loftgæðum í húsinu. Á meðan á lokun stóð unnu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar að tiltekt í tæknirými og kjallara húsnæðisins ásamt viðgerðum hér og þar. Þar að auki var fyrirtækið Disact fengið til að sótthreinsa húsnæðið með viðeigandi búnaði en fyrirtækið sérhæfir sig í að bæta loftgæði og vinnur meðal annars mikið í skólabyggingum um allt land.

Bæta loftgæði í Tónlistarskóla Stykkishólms - Skessuhorn