Heyskapur á Hesti í Borgarfirði síðasta sumar. Ljósm. mm

Halda ráðstefnu í tilefni 80 ára afmælis Tilraunabúsins á Hesti

Tveir viðburðir tengdir sauðfjárrækt verða haldnir að Hvanneyri og á Hesti í Borgarfirði dagana 21. - 22. mars næstkomandi. Hinn hefðbundni fagfundur sauðfjárræktarinnar, sem fagráð í sauðfjárrækt stendur fyrir, verður haldinn í Ásgarði á Hvanneyri kl. 10-17 fimmtudaginn 21. mars. Erindi þar verða fjölbreytt að vanda og greina frá niðurstöðum ýmissa rannsókna- og þróunarverkefna í sauðfjárrækt, meðal annars tengd riðu, fóðrun og meðferð, forystufé, sjúkdómum og kjötgæðum auk verðlaunaveitinga fagráðsins.

Halda ráðstefnu í tilefni 80 ára afmælis Tilraunabúsins á Hesti - Skessuhorn