Stefnt er á að sendarnir verði komnir upp fyrir árslok 2026. Kort af vef ruv.is

Stefnt að uppsetningu 24 farsímasenda á Vestfjörðum

Fjarskiptafyrirtækin og Neyðarlínan hyggjast reisa 24 farsímasenda á Vestfjörðum. Koma á símasambandi á alla stofnvegi fyrir árslok 2026 sem mun auka öryggi vegfarenda til muna. Frá þessu var sagt í kvöldfréttum RÚV í vikunni. Í Ísafjarðardjúpi er fjölfarinn vegur en fáir mannabústaðir. Víða er sambandslaust í botni fjarða. Það sama má segja um sunnanverða Vestfirði og Strandir. Ef eitthvað kemur upp á getur reynst erfitt að nálgast hjálp. Nú stendur þó til að bæta úr því.

Stefnt að uppsetningu 24 farsímasenda á Vestfjörðum - Skessuhorn