
Í Skorradal. Ljósm. mm
Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 79 á þremur mánuðum
Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um íbúafjölda eftir sveitarfélögum 1. mars síðastliðinn. Hér á Vesturlandi fjölgaði íbúum um 79 frá 1. desember 2023, eru nú 18.120 talsins. Af níu sveitarfélögum í landshlutanum fjölgar íbúum á tímabilinu í fimm, fækkar í þremur en í einu stendur íbúafjöldinn í stað.