Heimsókn nemenda FVA til Hildesheim

Sunnudaginn 4. febrúar síðastliðinn lögðu af stað fjórir nemendur og einn kennari frá tréiðnadeild Fjölbrautaskóla Vesturlands í heimsókn til Hildesheim, sem er 100.000 manna borg í neðra Saxlandi í Þýskalandi. Ferðin var farin sem samstarfsverkefni FVA við Erasmus+ en skólinn er með vottaða aðild að því batteríi. Verkefnið gekk út á að nemendurnir fengu að prófa að vinna hjá þýskum fyrirtækjum í tvær vikur, á meðan kennarinn kynnti sér kennslu við Walter-Gropius-Schule í Hildesheim.

Heimsókn nemenda FVA til Hildesheim - Skessuhorn