Fréttir

true

Bjarki Berg sigraði í hæfileikakeppni Arnardals og grunnskólanna á Akranesi

Hæfileikakeppni félagsmiðstöðvarinnar Arnardals og grunnskólanna á Akranesi fór fram í Bíóhöllinni í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Mikil stemning var á meðal áhorfenda sem horfðu á nemendur í 8.-10. bekk fara á kostum með alls konar atriði. Mest var um söng- og tónlistaratriði á hæfileikakeppninni þar sem heyra mátti meðal annars rokk, rapp og hugljúf lög…Lesa meira

true

Þingflokkur farinn í ferðalag – Myndasyrpa

Kjördæmavika er nú framundan á Alþingi og lauk þingstörfum fyrir hlé seint í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn er nú haldinn í ferðalag og var opinn fundur með þingmönnum haldinn í hádeginu í dag í Vinaminni á Akranesi. Þaðan er förinni heitið norður í land en klukkan 15 verður fundur í fjósinu á Bessastöðum í Húnaþingi vestra og…Lesa meira

true

Snjór kom ökumönnum á óvart

Mikið álag var á björgunarsveitir á Vesturlandi og Norðurlandi vestra í gærkvöldi og nótt. Koma þurfti ökumönnum um hundrað ökutækja til aðstoðar. Þessi vetrarfærð virðist hafa komið ökumönnum á óvart og í vandræði. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að þetta hafi byrjað seinni partinn í gær á Snæfellsnesi. Þar voru þó nokkrir sem lentu…Lesa meira

true

Húðvaktin býður upp á nýja þjónustu í húðlækningum

Húðvaktin er fyrsta þjónusta sinnar tegundar hér á landi og byggist á húðlækningum á netinu. Starfsemin fór í gang í byrjun þessa árs. Á bak við fyrirtækið eru þrír einstaklingar sem allir hafa sterka tengingu hingað á Vesturland. Þetta eru systkinin Bjarni Kristinn og Jenna Huld Eysteinsbörn, en þau ólust upp í Eskiholti í Borgarhreppi,…Lesa meira

true

KFÍA með 88 milljónir í hagnað fyrir árið 2023

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA fór fram síðasta þriðjudag á Jaðarsbökkum og var góð mæting á fundinn. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 var borinn upp til samþykktar á fundinum og þar kom fram að tap var á hefðbundinni starfsemi í rekstri Knattspyrnufélags ÍA á starfsárinu sem nam rúmum 13 milljónum króna. Með tekjum af samningum vegna sölu…Lesa meira

true

Bjóða til samtals á Akranesi næstkomandi þriðjudag

Kjördæmavika er framundan. Þingmenn VG munu mæta til fundar á Breiðinni á Akranesi þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 17. Í tilkynningu segir: „Vinstri græn bjóða til samtals í fundaferð í kjördæmaviku. Í þetta sinn er ferðinni skipt upp í þrjá leggi og verðum við á Akranesi á þriðjudaginn næstkomandi. Fundirnir eru opnir öllum og býðst fólki…Lesa meira

true

Liðskiptaaðgerðum á Akranesi fjölgaði um 45% milli ára

Valkvæðar liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám hér á landi voru samtals 2.138 árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri. Ríflega 16% þeirra voru framkvæmdar á Akranesi, en alls eru framkvæmdar liðskiptiaðgerðir á fimm stöðum hér á landi; Handlæknastöðinni, HVE Akranesi, Klínikinni, Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðgerðum fjölgaði um rúmlega 800 milli ára á landinu,…Lesa meira

true

Boða til íbúafunda vegna sameiningarviðræðna

Verkefnahópur um óformlegar sameiningarviðræður sveitarfélaganna Borgarbyggðar og Skorradalshrepps hafa nú boðað til tveggja íbúafunda í því skyni að eiga samráð við íbúa varðandi mögulega sameiningu sveitarfélaganna m.a. út frá styrkleikum, áskorunum og framtíðarsýn íbúa. Fundirnir verða báðir miðvikudginn 28. febrúar næstkomandi. Sá fyrri verður í Hjálmakletti í Borgarnesi klukkan 17-19 en síðari fundurinn er í…Lesa meira

true

Æfingar í fullum gangi við Sjúskað Sjobbí Sjóv

Íbúar í Borgarbyggð geta farið að reima á sig leikhússkóna því nú standa yfir stífar æfingar hjá nemendum Menntaskóla Borgarfjarðar, við uppfærslu verksins Rocky Horror Show – sem hefur verið þýtt af nemendum sem „Sjúskað Sjobbí Sjóv.“ Blaðamaður greip Rebekku Magnúsdóttur leikstjóra þar sem hún var að skipuleggja rennsli í Hjálmakletti í Borgarnesi. „Við erum…Lesa meira

true

Líflegar umræður á fundi á Reykhólum um atvinnuþróun og nýsköpun

Síðasta þriðjudag var boðað til undirbúningsfundar að stofnun atvinnu- og uppbyggingarklasa í Reykhólahreppi. Markmiðið með fundinum var að skapa umræðu- og samstarfsvettvang fyrir alla sem áhuga hafa á atvinnuþróun, nýsköpun og annarri uppbyggingu í Reykhólahreppi. Hrafnkell Guðnason, verkefnastjóri framkvæmda og uppbyggingar á vegum Reykhólahrepps, var með framsögu og fór yfir hvað klasastarfsemi gengur út á.…Lesa meira