
Frá aðalfundinum. Ljósm. kfia
KFÍA með 88 milljónir í hagnað fyrir árið 2023
Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA fór fram síðasta þriðjudag á Jaðarsbökkum og var góð mæting á fundinn. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 var borinn upp til samþykktar á fundinum og þar kom fram að tap var á hefðbundinni starfsemi í rekstri Knattspyrnufélags ÍA á starfsárinu sem nam rúmum 13 milljónum króna. Með tekjum af samningum vegna sölu leikmanna varð hins vegar jákvæð niðurstaða á rekstrinum sem nam 88 milljónum króna. Rekstrartekjur af hefðbundinni starfsemi voru rúmar 285 milljónir króna en rekstrargjöld rúmar 298 milljónir króna. Hagnaður vegna samninga um sölu á leikmönnum var um 97 milljónir króna sem þýðir eins og áður sagði jákvæða niðurstöðu ársins upp á 88 milljónir króna að teknu tilliti til fjármagnsliða.