Hér var ekki töluð vitleysan.

Þingflokkur farinn í ferðalag – Myndasyrpa

Kjördæmavika er nú framundan á Alþingi og lauk þingstörfum fyrir hlé seint í gærkvöldi. Sjálfstæðisflokkurinn er nú haldinn í ferðalag og var opinn fundur með þingmönnum haldinn í hádeginu í dag í Vinaminni á Akranesi. Þaðan er förinni heitið norður í land en klukkan 15 verður fundur í fjósinu á Bessastöðum í Húnaþingi vestra og loks á Blönduósi í kvöld. Blaðamaður Skessuhorns leit við í súpu og spjall í Vinaminni í hádeginu. Þar ávörpuðu þingmenn kjördæmisins gesti en síðan var sest á spjall og flökkuðu þingmenn flokksins milli borða og heilsuðu upp á fólk. Fundir af þessu tagi þykja henta vel til að eiga beint og milliliðalaust spjall við bakland flokksins og aðra gesti.

Þingflokkur farinn í ferðalag - Myndasyrpa - Skessuhorn