Bjarki Berg varð í fyrsta sæti. Ljósm. vaks

Bjarki Berg sigraði í hæfileikakeppni Arnardals og grunnskólanna á Akranesi

Hæfileikakeppni félagsmiðstöðvarinnar Arnardals og grunnskólanna á Akranesi fór fram í Bíóhöllinni í gærkvöldi fyrir fullu húsi. Mikil stemning var á meðal áhorfenda sem horfðu á nemendur í 8.-10. bekk fara á kostum með alls konar atriði. Mest var um söng- og tónlistaratriði á hæfileikakeppninni þar sem heyra mátti meðal annars rokk, rapp og hugljúf lög en einnig uppistand og réttstöðulyftu.  

Bjarki Berg sigraði í hæfileikakeppni Arnardals og grunnskólanna á Akranesi - Skessuhorn