
Liðskiptaaðgerðum á Akranesi fjölgaði um 45% milli ára
Valkvæðar liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám hér á landi voru samtals 2.138 árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri. Ríflega 16% þeirra voru framkvæmdar á Akranesi, en alls eru framkvæmdar liðskiptiaðgerðir á fimm stöðum hér á landi; Handlæknastöðinni, HVE Akranesi, Klínikinni, Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri. Aðgerðum fjölgaði um rúmlega 800 milli ára á landinu, eða um 60%. Miðgildi biðtíma eftir liðskiptaaðgerð fór úr 9,5 mánuðum í 4,6 mánuði á Landspítala frá byrjun til loka árs 2023. Á Sjúkrahúsinu á Akranesi hefur aðgerðum af þessu tagi fjölgað mjög á síðustu árum. Árið 2021 voru þær 155, árið 2022 voru þær 237 og á síðasta ári voru þær 344, fjölgaði um 45% milli ára sem skýrist af því að ný skurðstofa hafði þá verið tekin í notkun. Í janúar 2024 var framkvæmd 41 liðskiptiaðgerð á Akranesi; 27 fengu nýja hnjáliði og 14 nýja mjaðmaliði.