Fréttir

true

Guðfinnur gengur til liðs við ÍA

Knattspyrnumaðurinn Guðfinnur Þór Leósson hefur skrifað undir samning við KFÍA sem gildir út leiktíðina 2025. Guðfinnur, sem er fæddur árið 1999, er uppalinn Skagamaður og lék sinn eina deildarleik með ÍA árið 2017 þegar hann kom inn á sem varamaður undir lok leiks í 2-0 sigri ÍA gegn KA. Guðfinnur er vinnusamur og vel spilandi…Lesa meira

true

Hræðileg helgi framundan í Hólminum

Hræðileg helgi í Stykkishólmi hefst í dag í Stykkishólmi og stendur fram á laugardag. Það er Félag atvinnulífs í Stykkishólmi sem stendur að hátíðinni. Dagskráin hefst í dag klukkan 14 á Amtsbókasafninu þar sem hræðilegur ratleikur verður í boði fyrir börnin. Klukkan 20 verður í Norska húsinu opnun á ljósmyndasýningunni Andaðu eftir Jónu Þorvaldsdóttur og…Lesa meira

true

Sara Dís fékk verðlaun í eldvarnagetraun

Sigurður Þór Elísson eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar fór í gær í Grundaskóla á Akranesi og afhenti verðlaun í eldvarnagetraun slökkviliðsmanna. Einn úr hópi nemenda var svo ljónheppinn að vera dreginn út en leikurinn er á vegum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna. Getraunin er ætluð fyrir nemendur í 3. bekk, en í desember síðastliðnum komu…Lesa meira

true

Perlað var af krafti í Borgarnesi

Síðastliðinn þriðjudag fór fram í sal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Um 80 manns mættu til að perla armbönd og voru vel yfir 250 slík framleidd. Armböndin eru síðan seld til styrktar starfi Krafts.   Opið hús var á milli klukkan…Lesa meira

true

Kynntu fyrirhugaða breytingu á skipulagi Agustsonreits

Þriðjudaginn 6. febrúar síðastliðinn var á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi haldinn kynningarfundur vegna skipulagslýsingar á Augustsonreit en þar er nú fyrirhuguð bygging hótels og íbúða. Fram kemur í skipulagslýsingunni að lóðarhafar hyggjast ráðast í breytingarnar vegna minni sjávarútvegs tengdra umsvifa á svæðinu, sem meðal annars má rekja til hruns í skelveiðum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum…Lesa meira

true

Hefja endurræsingu á ofni Elkem í dag

Endurbótum á ljósbogaofni í kísilmálmverksmiðju Elkem á Grundartanga er lokið og stóð til að hefja endurræsingu hans í dag. Framkvæmdir við endurbæturnar hófust í byrjun október síðastliðnum og gengu vel. Vegna skerðingar á raforku til stórnotenda var ákveðið að bíða með gangsetningu ofnsins þar til nú. „Íbúar og starfmenn í fyrirtækjum í grennd við Grundartanga…Lesa meira

true

Líf og fjör í Stykkishólmi á öskudaginn – Myndasyrpa

Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi stóð fyrir heilmikilli dagskrá í gær á öskudaginn. Klukkan 14 leiddu þeir Kristjón Daðason og Hafþór Guðmundsson öskudagsgöngu um bæinn. Síðdegis bauð svo foreldrafélagið upp á hressandi skemmtun í Íþróttamiðstöðinni. Börnunum var eftir aldri úthlutað tímum í salnum. Þau yngstu byrjuðu klukkan 16:30 en elstu nemendur voru þegar komið var fram…Lesa meira

true

Unnur Ýr setur skóna upp í hillu

Knattspyrnukonan Unnur Ýr Haraldsdóttir hefur tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna eftir langan og farsælan feril með ÍA. Fyrsti leikur hennar með meistaraflokki var árið 2009 þegar hún var aðeins 15 ára gömul. Hún lék alls 161 deildarleik með ÍA, skoraði 64 mörk og lék alls tólf tímabil í meistaraflokki. Á FB síðu…Lesa meira

true

Tvær jafnar í efsta sæti á fyrsta móti í Vesturlandsdeildinni

Fyrsta mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum fór fram í gærkvöldi í Faxaborg í Borgarnesi. Keppt var í fjórgangi. Eftir forkeppni var það Fredrica Fagurlund og Sjarmur frá Fagralundi sem stóðu efst með 6,57 í einkunn. Í A úrslitum urðu þær Fredrika og Glódís Líf Gunnarsdóttir svo jafnar í fyrsta sæti en Fredrika sigraði í sætaröðunni…Lesa meira

true

Fimm ættliðir í beinan kvenlegg

Um miðjan janúarmánuð komu saman fimm ættliðir í beinan kvenlegg, en allar eru konurnar búsettar í Dalabyggð. Meðfylgjandi er skemmtileg mynd sem tekin var 12. janúar, tveimur dögum eftir fæðingu þeirrar yngstu. Á myndinni eru Inga Guðbrandsdóttir f. 1929, Erna Kristín Hjaltadóttir f. 1950, Berglind Vésteinsdóttir f. 1970, Hafdís Ösp Finnbogadóttir f. 2000 og Birkisdóttir…Lesa meira