Íbúar og starfmenn í fyrirtækjum í grennd við Grundartanga og víðar verða varir við útblástur frá fyrirtækinu í allt að tíu daga eftir gangsetningu. Ljósm. mm

Hefja endurræsingu á ofni Elkem í dag

Endurbótum á ljósbogaofni í kísilmálmverksmiðju Elkem á Grundartanga er lokið og stóð til að hefja endurræsingu hans í dag. Framkvæmdir við endurbæturnar hófust í byrjun október síðastliðnum og gengu vel. Vegna skerðingar á raforku til stórnotenda var ákveðið að bíða með gangsetningu ofnsins þar til nú.

Hefja endurræsingu á ofni Elkem í dag - Skessuhorn