
Fram kemur í skipulagslýsingunni að lóðarhafar hyggist ráðast í breytingarnar vegna minni sjávarútvegs tengdra umsvifa á svæðinu, sem meðal annars má rekja til hruns í skelveiðum. Ljósm. vaks
Kynntu fyrirhugaða breytingu á skipulagi Agustsonreits
Þriðjudaginn 6. febrúar síðastliðinn var á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi haldinn kynningarfundur vegna skipulagslýsingar á Augustsonreit en þar er nú fyrirhuguð bygging hótels og íbúða. Fram kemur í skipulagslýsingunni að lóðarhafar hyggjast ráðast í breytingarnar vegna minni sjávarútvegs tengdra umsvifa á svæðinu, sem meðal annars má rekja til hruns í skelveiðum. Bæjarstjórn ákvað á fundi sínum 25. janúar að auglýsa skipulagslýsinguna og er því í gangi lögbundið athugasemdaferli.