Líf og fjör í Stykkishólmi á öskudaginn – Myndasyrpa

Foreldrafélag Grunnskólans í Stykkishólmi stóð fyrir heilmikilli dagskrá í gær á öskudaginn. Klukkan 14 leiddu þeir Kristjón Daðason og Hafþór Guðmundsson öskudagsgöngu um bæinn. Síðdegis bauð svo foreldrafélagið upp á hressandi skemmtun í Íþróttamiðstöðinni. Börnunum var eftir aldri úthlutað tímum í salnum. Þau yngstu byrjuðu klukkan 16:30 en elstu nemendur voru þegar komið var fram á kvöld. Allir skemmtu sér vel eins og meðfylgjandi myndir Sumarliða Ásgeirssonar sýna.

Líf og fjör í Stykkishólmi á öskudaginn - Myndasyrpa - Skessuhorn