
Imba og Vigga perluðu af krafti. Ljósm. hig
Perlað var af krafti í Borgarnesi
Síðastliðinn þriðjudag fór fram í sal Safnahúss Borgarfjarðar í Borgarnesi fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur. Um 80 manns mættu til að perla armbönd og voru vel yfir 250 slík framleidd. Armböndin eru síðan seld til styrktar starfi Krafts.