Sara Dís og Sigurður Þór. Ljósm. Grundaskóli

Sara Dís fékk verðlaun í eldvarnagetraun

Sigurður Þór Elísson eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar fór í gær í Grundaskóla á Akranesi og afhenti verðlaun í eldvarnagetraun slökkviliðsmanna. Einn úr hópi nemenda var svo ljónheppinn að vera dreginn út en leikurinn er á vegum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna. Getraunin er ætluð fyrir nemendur í 3. bekk, en í desember síðastliðnum komu slökkviliðsmenn í heimsókn í skólana og fengu börnin fræðslu um eldvarnir. Í kjölfarið fengum þeir bæklinga til að fara með heim og getraunablað sem þeir áttu að svara og skila inn til kennara sem sendi síðan svörin áfram.

Sara Dís fékk verðlaun í eldvarnagetraun - Skessuhorn