Fréttir

true

Kæra ákvörðun sýslumanns

Matvælastofnun hefur kært ákvörðun Lögreglustjórans á Vestfjörðum um niðurfellingu máls þegar 3.500 laxar sluppu úr kví á eldissvæði Arctic Sea Farm við Kvígindisdal í Patreksfirði í ágúst 2023. Að mati Matvælastofnunar var innra eftirliti ábótavant og ekki var farið að verklagsreglum sem félagið hafði sett sér við slátrun sem leiddi til umfangsmikils stroks á eldisfiski.…Lesa meira

true

Skallagrímur með góðan sigur á Hrunamönnum

Hrunamenn og Skallagrímur mættust í 1. deild karla á föstudagskvöldið og var leikurinn á Flúðum. Átta stig skildu liðin að fyrir leik, Skallagrímur var í sjöunda sæti með tólf stig á meðan heimamenn voru í neðsta sætinu ásamt Snæfelli með fjögur stig. Það var jafnt á flestum tölum í byrjun leiks og staðan 13:13 eftir…Lesa meira

true

Loks var hægt að opna skíðasvæði Snæfellsness

Þegar snjó tók að kyngja niður í Grundarfirði fóru skíðaþyrstir íbúar að gjóa augunum upp í fjall til að gá hvort snjótroðarinn væri kominn á stjá. Það lyftist brúnin á þeim á laugardagskvöldið þegar ljósin frá troðaranum sáust færast upp og niður skíðabrekkuna enda var töluvert af snjó komið í brekkuna. Búið var að troða…Lesa meira

true

Kúabúum fækkaði um 20 á nýliðnu ári

Ýmislegt fróðlegt kemur fram í niðurstöðum skýrsluhalds ársins í mjólkurframleiðslu hér á landi, en þær hafa nú verið reiknaðar og birtar á vef Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins á rml.is. Meðalbú í mjólkurframleiðslu hér á landi stækkaði milli ára, sem er í takti við fækkun innleggsbúa og aukið innlegg mjólkur. Í samantekt RML kemur fram að meðalinnlegg á…Lesa meira

true

Skemmtilegur Úlfur úlfur í Grundaskóla

Söngleikurinn Úlfur úlfur var frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi síðasta föstudagskvöld. Höfundar verksins eru þeir Einar Viðarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi Einarsson. Söngleikurinn var síðast sýndur árið 2015 og var þá færður upp í Bíóhöllinni. Einar Viðarsson er leikstjóri sýningarinnar og Flosi Einarsson tónlistarstjóri. Nemendur í 10. bekk úr árgangi 2008 sem útskrifast í…Lesa meira

true

Stærsta fjáröflunin er pönnukökusala á Bóndadaginn

Konur í Soroptimistaklúbbi Akraness og Hvalfjarðarsveitar hafa sem sína helstu fjáröflun ár hvert að baka reiðinnar býsn af pönnukökum og selja til fyrirtækja að morgni Bóndadags. Vel er tekið í framtakið og þúsundir pönnukaka skiptu um eigendur í morgunsárið á föstudaginn; ýmist með sykri eða rjóma og sultu. Þegar ritstjóri Skessuhorns leit við til að…Lesa meira

true

Vilhjálmur með nýtt útspil í umræðuna – Núll kauphækkun og engar gjaldskrárhækkanir

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins og VLFA, kynnti um helgina nýja tillögu um hvernig ná megi böndum á verðbólgu og vaxtabyrði heimila og fyrirtækja hér á landi. „Það er mín persónulega skoðun að langmesta kjarabótin fyrir launafólk nú væri að semja um 0% launahækkun á þessu ári. En takið eftir, skilyrðið fyrir því væri að ríki…Lesa meira

true

Ræddu helstu áskoranir í orkumálum landsmanna

„Verðum að gera betur – staða og áskoranir í raforkumálum,“ var yfirskrift fundar sem Sjálfstæðisflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt á Akranesi síðastliðinn fimmtudag. Frummælendur voru Líf Lárusdóttir formaður bæjarráðs á Akranesi, Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss, Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland og Teitur Björn Einarsson alþingismaður. Öll nálguðust þau umræðuefnið út frá ólíkum vinklum, en voru með…Lesa meira

true

Móðir og hrútlamb í Vífilsdal greind með ARR genasamsætuna

Staðfest hefur verið að ARR genasamsætan, sem hefur verndandi áhrif gegn riðuveiki, hefur nú fundist í gripum sem óskildir eru Þernunesfénu. Á bænum Vífilsdal í Hörðudal í Dalasýslu greindist ARR í hrútlambi í haust sem á ekki foreldra sem vitað var að bæru ARR. Í framhaldinu var greint sýni úr móðir hrútsins og reyndist hún…Lesa meira

true

Búast við ófærð á fjallvegum seint í kvöld

Seint í kvöld, eða um það leyti sem þjónustutíma Vegagerðarinnar lýkur úti um landið, er reiknað með að það hvessi af suðvestri. Þá verður skafrenningur og blint mjög víða á heiðum og fjallvegum. „Líklegt er að margir vegir verði þungfærir eða ófærir af þeim sökum í nótt,“ segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.Lesa meira