
Úr sýningunni Úlfur úlfur. Ljósm. aðsend
Skemmtilegur Úlfur úlfur í Grundaskóla
Söngleikurinn Úlfur úlfur var frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi síðasta föstudagskvöld. Höfundar verksins eru þeir Einar Viðarsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Flosi Einarsson. Söngleikurinn var síðast sýndur árið 2015 og var þá færður upp í Bíóhöllinni. Einar Viðarsson er leikstjóri sýningarinnar og Flosi Einarsson tónlistarstjóri. Nemendur í 10. bekk úr árgangi 2008 sem útskrifast í vor úr Grundaskóla hafa undanfarnar vikur æft af miklum móð og er sýningin kveðjuverkefni þeirra. Þetta er fjórða árið í röð sem 10. bekkur sýnir lokaverkefni sitt í Grundaskóla og taka allir nemendur þátt í sýningunni á einn eða annan hátt.