Fréttir

true

Vorverkin á höfninni

Það er þó nokkuð um að vera á höfninni í Grundarfirði þessa dagana en verið er að steypa nýja þekju á eldri hluta hafnarinnar og svo er Köfunarþjónustan ehf að gera við göt á járnþiljum neðansjávar og verða næstu daga við þá vinnu. Svo eru að sjálfsögðu landanir þegar skipin koma til hafnar reglulega.Lesa meira

true

Úr safni: „Ætla mér að ganga keikur inn í sólarlagið”

Á laugardögum birtast gömul viðtöl úr smiðju Skessuhorns sem ekki hafa áður birst á vefnum í heild. Viðtal þetta birtist í jólablaði Skessuhorns, 8. tölublaði 2020 sem kom út 19. febrúar. Hér var rætt við Sævar Þór Magnússon sem var þolandi áralangs eineltis en hefur náð sátt í dag. Hann var kjötiðnaðarmaður að ævistarfi en…Lesa meira

true

Barist um bestu bitana þegar lagt er út fyrir tófu

Þetta skemmtilega myndbrot var tekið upp á vöktunarvél með hræjum sem lögð höfðu verið út fyrir tófu á ónefndum stað í Borgarfirði. Veiðimaðurinn setti upp myndavélarvöktun og hreyfiskynjari lætur hann vita þegar umgangur er á svæðinu. Í þeirri vöktun kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Fleiri en tófan gera sér nefnilega mat úr þessu. Hrafnar og…Lesa meira

true

Viðurkenningar og verðlaun á Skeifudegi nemenda LbhÍ

Skeifudagurinn var að venju haldinn á Mið-Fossum í Andakíl í gær, á sumardaginn fyrsta. Dagurinn hófst á fánareið og ávarpi Helga Eyleifs Þorvaldssonar brautarstjóra. Nemendur í hestafræði sýndu munstursreið áður en nemendur í búfræði sýndu afraksturs vetrarins með tamningatrippi sín undir lýsingu reiðkennara þeirra; Guðbjartar Þórs Stefánssonar frá Skipanesi. Þá komu mæðgurnar Guðrún og Þórdís…Lesa meira

true

Samtal við forsætisráðherra um Sjálfbært Ísland – fundur í Borgarnesi á mánudaginn

Mánudaginn 24. apríl klukkan 16-17:30 mun Katrín Jakobsdóttir halda fund í Hjálmakletti í Borgarnesi. Forsætisráðherra býður þessa dagana til opinna samráðsfunda um landið og fjallar um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundinum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.…Lesa meira

true

Hopp hjólin komin til Grundarfjarðar

Fyrr í vikunni fóru Hopp hlaupahjólin að skjóta upp kollinum víðsvegar um Snæfellsnes en það er Hopp Snæfellellsnes sem sér um að reka og viðhalda hjólunum. Þeir Friðjófur Orri Jóhannsson og Benedikt Gunnar Jensson voru á ferðinni síðasta miðvikudag og dreifðu fimmtán hjólum víðsvegar um Grundarfjörð. Hjólaleigan var svo formlega opnuð á sumardaginn fyrsta.Lesa meira

true

Hér getur þú lesið Skessuhorn vikunnar

Skessuhorn óskar Vestlendingum gleðilegs sumars! Í ljósi þess að frídagur var í gær, og enginn póstur borinn út þann daginn hjá Íslandspósti, hefur prentútgáfa Skessuhorns ekki enn borist til hluta áskrifenda og óvíst hvort það náist fyrir helgina. Til að bregðast við því býður Skessuhorn lesendum að nálgast rafræna útgáfu af blaðinu á PDF-formi með…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði og er kominn upp við vegg

Hamar og Skallagrímur mættust í þriðja leik í úrslitaeinvíginu um sæti í Subway deild karla í körfuknattleik á miðvikudagskvöldið og var leikurinn í Frystiklefanum í Hveragerði. Staðan var jöfn 1-1 eftir fyrstu tvo leikina og ljóst að liðið sem myndi ná sigri í þessum leik væri kominn vel ofan á í þessu hörku einvígi. Það…Lesa meira

true

Brýrnar á Skógarströnd að taka á sig mynd

Framkvæmdir við brýrnar yfir Dunká og Skraumu á Skógarströnd hafa gengið vel að undanförnu. Borgarverk er verktaki við framkvæmdirnar en auk brúargerðarinnar er 5,4 km kafli Skógarstrandarvegar endurnýjaður í þessum áfanga. Brúin yfir Skraumu er 43 metra löng en yfir Dunká er hún 52 metrar. Verklok við framkvæmdirnar voru í upphafi framkvæmda áætluð nú í…Lesa meira

true

Guðrún Halla er nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar Norðuráls

Guðrún Halla Finnsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra viðskiptaþróunar hjá Norðuráli og mun m.a. leiða vinnu við raforkusamninga fyrirtækisins. Guðrún Halla hefur starfað hjá Norðuráli frá árinu 2016, en þar áður starfaði hún hjá raforkufyrirtækinu Southern California Edison í Los Angeles. Hún er með Bsc gráðu í aðgerðarannsóknum með áherslu á fjármálaverkfræði frá Columbia háskóla…Lesa meira