
Mánudaginn 24. apríl klukkan 16-17:30 mun Katrín Jakobsdóttir halda fund í Hjálmakletti í Borgarnesi. Forsætisráðherra býður þessa dagana til opinna samráðsfunda um landið og fjallar um sjálfbæra þróun á Íslandi. Á fundinum verður fjallað um stöðu sjálfbærni, helstu áskoranir, tækifæri og valkosti til framfara en vinna stendur yfir við mótun stefnu Íslands um sjálfbæra þróun.…Lesa meira








