Fréttir

true

Akranes tekur á móti allt að 80 flóttamönnum

Akraneskaupstaður tekur á móti allt að 80 flóttamönnum samkvæmt samningi sem undirritaður hefur verið milli félags- og vinnumarkaðsráðuneytis og bæjaryfirvalda. Þetta er tíundi samningurinn sem gerður er um samræmda móttöku flóttafólks frá því í nóvember síðastliðnum. Heildarfjöldi flóttafólks samkvæmt samningunum er orðinn um 3.000. Samræmd móttaka flóttafólks nær til fólks sem fengið hefur alþjóðlega vernd…Lesa meira

true

Kvennatölt hestamannafélagsins Borgfirðings

Kvennatölt hmf. Borgfirðings fór fram föstudagskvöldið 14. apríl í Faxaborg. Góð skráning var á mótið og gaman að sjá konur bæði að norðan og sunnan koma og keppa við stöllur sínar í Borgarbyggð. Þemað á mótinu var rautt og því mikið um rauðar skreytingar bæði á hrossum og knöpum. Veitt voru verðlaun fyrir glæsilegasta búning…Lesa meira

true

Boða til fundar um kornrækt í kvöld

Klukkan 20 í kvöld hefst fundur í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. Fyrir honum standa bændurnir og kornræktendurnir Eiríkur Blöndal og Magnús Eggertsson. „Tilefni fundarins er nýframkomin skýrsla um kornræktarmál og áætlanir um aukinn stuðning við kornrækt. Helgi Eyleifur Þorvaldsson frá LbhÍ mun greina frá tillögum í kornræktarmálum og við ræðum þá möguleika sem eru í…Lesa meira

true

Gáfu tvo björgunarhringi á Breið

Slysavarnadeildin Líf á Akranesi kom færandi hendi fyrir helgi. Gaf deildin Akraneskaupstað tvo björgunarhringi sem komið verður fyrir á Breið, en báðir björgunarhringirnir sem þar voru höfðu horfið. „Þetta er þakkarvert því þessir björgunarhringir eru mikilvægt öryggisatriði við fjörur og strendur. Einnig langar mig að vekja athygli á því hversu mikilvægt það er að ganga…Lesa meira

true

Skallagrímur jafnaði metin í hörkuleik

Næstum sjö hundruð áhorfendur voru mættir í Fjósið í Borgarnesi í gærkvöldi á leik Skallagríms og Hamars í úrslitum um sæti í Subway deild karla í körfuknattleik. Hamarsmenn höfðu sigur á fimmtudagskvöldið í fyrsta leik liðanna og því var ljóst fyrir leik að Skallagrímur væri kominn upp við vegg ef ekki næðist sigur á heimavelli.…Lesa meira

true

Sex verkefni á Vesturlandi fá framkvæmdastyrki

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, tilkynnti um úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða síðastliðinn föstudag. Í ár hljóta 28 verkefni á landsvísu styrk fyrir alls 550 milljónir króna. Þar af eru sex verkefni á Vesturlandi sem fá stuðning. „Verkefnin sem hljóta styrki í ár snúa að fjölbreyttri uppbyggingu um land allt. Það er sérstaklega ánægjulegt að…Lesa meira

true

Eftirminnilegt eintal á Sögulofti

Á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi kvað við nýjan tón síðastliðið laugardagskvöld. Þar hefur gjarnan stigið á stokk sagnafólk sem rifjar upp fornsögurnar með áheyrendum eða segir sögur af fólki. Nýjasta sagnakona Landnámsseturs flytur hinsvegar frumsamda sögu; skáldverk sem komið hefur út á bók en birtist nú áheyrendum í nýjum búningi. Skáldsagan Guð leitar að Salome…Lesa meira

true

Veiðikortið nú aðgengilegt í símann

Vatnaveiðin er nú að komast á fullt og veiði hefur þegar hafist á nokkrum vatnasvæðum sem hægt er að stunda með því að vera með áskrift að Veiðikortinu. Sem fyrr er hægt að kaupa Veiðikortið sem plastkort upp á gamla mátann en bætt hefur verið við þeim möguleika að hafa kortið rafrænt í símanum. Þó…Lesa meira

true

Þurfa að bæta fjórfalt fleiri krókum við á steinbítsveiðunum

Línu- og dragnótarbátar hafa notað hrygningarstoppið til þess að veiða steinbít, á meðan þorskurinn er á fæðingadeildinni. Ákveðin svæði út af Vestfjörðum og Látrabjargi eru opin fyrir steinbítsveiði. Bátar frá Snæfellsnesi hafa að undanförnu fiskað vel af steinbít eins og beitningarvélarbáturinn Lilja SH frá Rifi. Einnig hefur Sverri SH og Kristinn HU gert góða hluti…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 18. apríl, frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir sem mega gefa blóð hvattir til að mæta.Lesa meira