Magnús í Ásgarði að þreskja korn. Ljósm. úr safni.

Boða til fundar um kornrækt í kvöld

Klukkan 20 í kvöld hefst fundur í félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit. Fyrir honum standa bændurnir og kornræktendurnir Eiríkur Blöndal og Magnús Eggertsson.

„Tilefni fundarins er nýframkomin skýrsla um kornræktarmál og áætlanir um aukinn stuðning við kornrækt. Helgi Eyleifur Þorvaldsson frá LbhÍ mun greina frá tillögum í kornræktarmálum og við ræðum þá möguleika sem eru í kornræktinni núna. Við bjóðum bændur og aðra áhugasama velkomna,“ segir í tilkynningu frá þeim félögum.

Boða til fundar um kornrækt í kvöld - Skessuhorn