
Allt fé frá bænum Bergsstöðum, þar sem riða greindist í síðustu viku, hefur nú verið skorið niður. Samtímis niðurskurðinum voru kindur af nokkrum öðrum bæjum sem keyptar höfðu verið frá Bergsstöðum aflífaðar og sýni tekin úr þeim. Við rannsókn á sýnunum reyndist ein þeirra vera jákvæð. Hún var frá bænum Syðri-Urriðaá sem er nágrannabær Bergsstaða.…Lesa meira








