„Tölum meira um geðheilsu!“ – Hugrún geðfræðslufélag fer af stað með nýtt átak

Hugrún geðfræðslufélag hefur farið af stað með nýtt átak sem ber yfirskriftina „Tölum meira um geðheilsu!“. Um er að ræða þrjú stutt myndbönd sem eru ætluð til þess að vekja fólk til umhugsunar um geðheilsu. Myndböndin voru birt sunnudaginn 9. apríl á samfélagsmiðlum félagsins (@gedfraedsla á Instagram og Hugrún - geðfræðslufélag á Facebook).

„Tölum meira um geðheilsu!“ - Hugrún geðfræðslufélag fer af stað með nýtt átak - Skessuhorn