
Innkalla of sterka blöndu af borðediki
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Flóru borðediki sem Vilko ehf. framleiðir. Vegna mistaka í framleiðslu borðediks fór óblönduð sýra á markað í stað 4% sýru sem á að vera styrkleiki á borðediki. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu þar sem framleiðsludagur/best fyrir dagsetningar eru: 20.09.22/20.09.24. Varan fór í dreifingu í verslanir um allt land.