
Starfshópurinn á m.a. að meta hagkvæmni þess að auka varmadæluvæðingu.
Skoða orkuöflun og bætta orkunýtingu
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað þriggja manna starfshóp til að kanna möguleika þess að nota fleiri leiðir til bættrar orkunýtingar og orkuöflunar. Er þar m.a. átt við aðra orkukosti en þá sem felast í vatnsafli (yfir 10 MW), jarðvarma og vindi. Starfshópnum er ætlað að skoða hvaða möguleikar felast í; smávirkjunum fyrir vatnsafl, sólarorkuverum, sjávarfallavirkjunum, varmadæluvæðingu á stærri skala, sólarsellum, vindorku og varmadælum á smærri skala, nýtingu glatvarma, sveigjanlegri notkun og bætta orkunýtni, auk annarra kosta.